News
LANGUR FIMMTUDAGUR
Eftir áralanga baráttu hönnuða um stofnun hönnunarmiðstöðvar hefur sá langþráði draumur loks litið dagsins ljós. Hönnunarmiðstöð Íslands er í burðarliðnum og stendur til að ráðuneyti menntamála og iðnaðar geri samstarfsamning við fagfélög hönnuða um rekstur hennar. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref í þróun hönnunarmála á Íslandi enda er fagið í örum vexti og margar þjóðir líta á greinina sem eina af verðmætustu auðlindum þekkingar- og upplifunarsamfélags framtíðarinnar.
Stofnendur Hönnunarmiðstöðvarinnar eru fagfélög sem áður störfuðu saman undir hatti Samtaka Hönnuða - Form Ísland. Við uppbyggingu miðstöðvarinnar verður lögð áhersla á að nýta það brautryðjendastarf sem unnið var hjá Hönnunarvettvangi svo þekking og reynsla fari ekki forgörðum. Einnig að Hönnunarmiðstöð Íslands muni hafa fjármagn og starfskrafta til að halda áfram því starfi sem lagður var grunnur að hjá Hönnunarvettvangi.
Stofnendur Hönnunarmiðstöðvar Íslands og fulltrúar þeirra:
1. Leirlistarfélag Íslands, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir
2. Félag vöru og iðnhönnuða, Egill Egilsson
3. Félag íslenskra gullsmiða, Haukur Valdimarsson
4. Félag íslenskra landslagsarkitekta, Dagný Bjarnadóttir
5. Textílfélagið, Rósa Helgadóttir
6. Félag húsgagna- og innanhúsarkitekta, Hallgrímur Friðgeirsson
7. Félag Íslenskra teiknara, Haukur Már Hauksson
8. Arkitektafélag Íslands, Dennis Davíð Jóhannesson
9. Fatahönnunarfélag Íslands, Gunnar Hilmarsson
Í von um fjölmennar og fjörugar umræður.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell Birgisson formaður samtakanna í síma: 865-7434
AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT
OPIÐ TIL KL. 22:00 ALLA FIMMTUDAGA Í HAFNARHÚSI
Print Go back