News

D9 JÓNA HLÍF HALLDÓRSDÓTTIR LAUGARDAGINN 27. SEPTEMBER KL. 16:00

Fyrsta hluta sýningaraðrinnar lauk í maí síðastliðnum en þá höfðu átta listamenn kynnt verk sín í salnum. D-sýningaröðinni er ætlað að efla unga og efnilega listamenn og gefa þeim tækifæri til að kynna verk sín á einkasýningu í opinberu safni. Fyrri sýningaröðinni lauk með útgáfu sýningarskrár með verkum sýnendanna auk þess sem Listasafn Reykjavíkur stóð fyrir málþingi um stöðu yngri
listamanna í samtímanum.

JÓNA HLÍF HALLDÓRSDÓTTIR
Í innsetningum sínum vinnur Jóna Hlíf með skúlptúra, myndbönd, málverk og texta en innsetning hennar í D-salnum nefnist Plenty of Nothing. Jóna Hlíf er fædd í Reykjavík 1978 og lauk diploma prófi árið 2005 og MFA árið 2007 frá Glasgow School of Art. Hún er sýningarstjóri VeggVerk og Gallerí Ráðhús og hefur rekið GalleriBOX á Akureyri frá árinu 2005. Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.
Sýningin verður opnuð á sama tíma og ID-LAB, sem áður hefur verið kynnt, og stendur til 9. nóvember.


ÓKEYPIS AÐGANGUR
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT

Print Go back




 

Mobile | Contact us | Sitemap | Large/small     

 

 

Hafnarhus

Visit the museum
Open: 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstadir

Visit the museum
Open: 10:00 - 17:00

 

Asmundarsafn

Visit the museum
Open: 10 a.m. - 5 p.m.