News
Óðinshrafninn
Hið tignarlega verk Ásmundar Sveinssonar, Óðinshrafninn, hefur nú verið steyptur í takmörkuðu upplagi og er nú fáanlegur í verslunum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi, Ásmundarsafni og á Kjarvalsstöðum.
Óðinshrafninn er sextánda höggmynd Ásmundar sem gerð hefur verið sem afsteypa og seld í verslunum safnsins. Nú þegar eru fjögur verkanna algjörlega uppseld vegna takmörkunar á upplagi. Ásmundur Sveinsson gerði Óðinshrafninn árið 1952 en verkið er að finna fyrir utan Menntaskólann á Akureyri og einnig í Skallagrímsgarði í Borgarnesi. Afsteypan er 36 cm á hæð, hvít að lit og kostar kr. 45.000,-
Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 19.13.2013
|