Laus er til umsóknar staða kynningarstjóra Listasafns Reykjavíkur.
Um er að ræða fullt starf og nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Leiðarljós Listasafns Reykjavíkur er að vera framúrskarandi alþjóðlegur vettvangur myndlistar sem leggur áherslu á markvissa þjónustu við ólíka hópa og er eftirsóknarverður viðkomustaður í daglegu lífi fólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kynningarstjóri sér um fjölmiðlasamskipti safnsins, ritun fréttatilkynninga, ritstjórn heimasíðu og rafræns fréttabréfs, gerð prentaðra og rafrænna boðskorta og móttöku innlendra og erlendra fréttamanna. Kynningarstjóri er ábyrgur fyrir heildrænu útliti á útgáfu- kynningar- og auglýsingaefni safnsins, gerð margmiðlunarefnis, virkri notkun samfélagsmiðla og þróun nýrrar miðlunar.
Næsti yfirmaður er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Hæfniskröfur
Krafist er háskólamenntunar á framhaldsstigi í myndlist og/eða listfræði eða á sviði fjölmiðlunar, auk mikillar reynslu á starfssviðinu, ennfremur framúrskarandi samskiptafærni á íslensku og ensku, mikillar leikni í mannlegum samskiptum, hugmyndaauðgi, frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða, skipulagshæfileika, sveigjanleika og hæfni til að vinna undir álagi. Góð tölvukunnátta, þekking á innsetningu efnis á heimasíður og samfélagsmiðla og haldgóð þekking á myndvinnslu er nauðsynleg.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Starfshlutfall 100%
Umsóknarfrestur 19.11.2012
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Friðbertsdóttir í síma 590-1200 eða með því að senda fyrirspurnir á anna.fridbertsdottir@reykjavik.is
Listasafn Reykjavíkur
Tryggvagata 17
101 Reykjavík
Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 26.51.2013