|
|
 |
|
|
ENGLISH VERSION
|
VIKA 8 - FRÉTTABRÉF LISTASAFNS REYKJAVÍKUR |
|
Fjölbreytti dagskrá er hjá Listasafni Reykjavíkur í þessari viku. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona velur uppáhaldsverkið sitt á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum á fimmtudag, í Ásmundarsafni verður boðið upp á skemmtilega listsmiðju fyrir krakka 21. og 22. febrúar. Vöruhönnuður frá fyrirtækinu Össur heldur fyrirlestur í Hafnarhúsinu á fimmtudag og LornaLAB kynnir smátölvu í Hafnarhúsinu á laugardag. Þá verður boðið upp á listsmiðjuna ,,Mótað í sand" í Hafnarhúsi á sunnudag.
|
|
FLÆÐI: UPPÁHALDSVERK GUÐRÚNAR ÁSMUNDSDÓTTUR |
|
KJARVALSSTAÐIR, FIMMTUDAG 21. FEBRÚAR KL. 12:15 |
|

Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona.

Hér má sjá stutt viðtal við
Jón Gnarr um verk vikunnar.
Færa í dagatal:
Facebook - Google - Outlook
|
|
Listasafn Reykjavíkur hefur leitað til þjóðþekktra einstaklinga og beðið þá að velja sér uppáhaldsverkið sitt á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum og segja frá því á hverjum fimmtudegi. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona segir gestum frá vali sínu á verki vikunnar, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 12.15.
Á þessari óvenjulegu sýningu gefst almenningi einstætt tækifæri til að sjá stóran hluta af safneign Listasafns Reykjavíkur. Sýningin tekur stöðugum breytingum þá tæpu fjóra mánuði sem hún stendur yfir en verkum verður sífellt skipt út á sýningartímanum, jafnvel meðan gestir eru viðstaddir. Það má því búast við spennandi sýningu þar sem gestum gefst kostur á að kynnast safneign Listasafns Reykjavíkur á nýjan og spennandi hátt.
Verk vikunnar verður valið alla fimmtudaga kl. 12.15 meðan á sýningu stendur. Nánari útlistun á gestum hverju sinni má finna hér.
>Sjá nánar
|
|
LIST-GEIMUR, MINN HEIMUR: LISTSMIÐJA FYRIR KRAKKA (6 ÁRA +) |
|
ÁSMUNDARSAFN, FIMMTUDAG 21. OG FÖSTUDAG 22. FEBRÚAR KL 14-16 |
 |
 |
 |
|

Færa í dagatal:
Facebook - Google - Outlook
|
|
Boðið verður upp á tvær vinnusmiðjur í Ásmundarsafni fyrir krakka (6 ára+) fimmtudag og föstudag 21. og 22. febrúar frá kl. 14-16 undir leiðsögn Emmu Lindahl og Helenu Hansdóttur Aspelund listkennslunema við Listaháskólann.
Smiðjan er sett upp í tengslum við vetrarfrí sem stendur yfir í flestum grunnskólum þessa daga og er kjörið tækifæri til að eiga góða og skapandi samverustund með fjölskyldunni. Við hvetjum forráðamenn, foreldra, ömmur og afa að koma og taka þátt með börnunum.
>Sjá nánar
|
|
FYRIRLESTRARÖÐ | ÞRÓUN Í NÁVÍGI |
|
HAFNARHÚS, FIMMTUDAG 21. FEBRÚAR KL. 20 |
|

Færa í dagatal:
Facebook - Google - Outlook
|
|
Fyrirtækið Össur er leiðandi á heimsvísu í hönnun og framleiðslu stoðtækja, spelkna og stuðningsvara. Hjá því starfa um 1800 starfsmenn í 15 löndum, höfuðstöðvarnar eru á Íslandi, en starfsstöðvar víða í Norður Ameríku, Evrópu og Asíu.
Vöruhönnuðurinn Sindri Páll Sigurðsson starfar í þróunardeild Össurar. Hann ætlar í fyrirlestri í Hafnarhúsinu, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 20 að rekja þróunarferli nokkurra vara, frá hugmynd að endanlegri vöru. Hann kynnir jafnframt starfsemi fyrirtækisins á alþjóðavettvangi og fer yfir styrk þess og starfsemi hér á landi, með áherslu á þróunardeildina.
Fyrirlesturinn fer fram á íslensku.
>Sjá nánar
|
|
LornaLAB: RASPBERRY PI |
|
HAFNARHÚS, LAUGARDAG 23. FEBRÚAR KL. 13-15 |
 |
 |
 |

Færa í dagatal:
Facebook - Google - Outlook
|
|
LornaLAB kynnir Raspberry Pi - smátölvuna í opnu spjalli laugardaginn 23. janúar í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi.
Raspberry Pi fæst að öllu jöfnu með sérsniðinni Linux uppsetningu en fleiri stýrikerfi hafa einnig verið sniðin fyrir hana. Hún er ódýr og öflug og hefur því kveikt áhuga margra í nýsköpunar-, grúsk- og þróunarsamvinnugeirum.
Lornalab hefur fregnir af því að um 1000 Raspberry Pi séu í notkun á Íslandi. Allir eigendur RPi sem og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta, hlýða á kynningar, drekka kaffi og spjalla.
Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn.
>Sjá nánar
|
|
MÓTAÐ Í SAND - SMIÐJA FYRIR KRAKKA (9 ÁRA +) |
|
HAFNARHÚS, SUNNUDAG 24. FEBRÚAR KL. 14-16 |
 |
 |
 |

Færa í dagatal:
Facebook - Google - Outlook
|
|
Listasafn Reykjavíkur býður upp á opna listsmiðju Mótað í sand fyrir 9 ára og eldri börn í tengslum við sýningu Roberts Smithsons: Rýnt í landslag.
Á sýningunni er lögð áhersla á verkið Brotin hring/Spíralhæð sem Smithson gerði í Emmen í Hollandi árið 1971. Verkið er eina umhverfislistarverk Smithson í Evrópu.
Sköpunargleði þátttakanda er virkjuð með umræðu og vangaveltum um staðsetningu listaverka og efnisnotkun um spíralformið. Í öðrum hluta smiðjunnar hefur verið sett upp vinnustofa þar sem hægt er að útfæra hugmyndir í sand.
Leiðbeinendur eru Hugrún Þorsteinsdóttir arkitekt og Ásdís Spanó, myndlistarmaður. Þær hafa starfað saman að listkennslu fyrir börn og eru báðar menntaðir listgreinakennarar.
>Sjá nánar
|
|
|
 |
|
|
|
|
Með kveðju,
Berghildur Erla Bernharðsdóttir
Kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur
Sími 590-1200 / 694-5149
Listasafn Reykjavíkur
Sími 590-1200
listasafn@reykjavik.is |
Hafnarhús
Opið daglega 10-17, fimmtudaga 10-20
Kjarvalsstaðir
Opið daglega 10-17
Ásmundarsafn
Opið maí - sept 10-17 / okt. - apríl lau.& sun.13-17 |
|
|
|
|
|