|
Dagskrá HönnunarMars 2013 14.-17. mars
Hafnarhús / fjölnotasalur
XLAND
XLAND er lifandi gátt sem býður þér, fjölskyldu þinni og vinum í ferðalag um vel hönnuð borgarrými. Félag íslenskra landslagsarkitekta stendur fyrir fyrstu gagnvirku sýningunni þar sem verkum landslagsarkitekta á höfuðborgarsvæðinu er safnað saman á einn stað. Á www.XLAND.is kemst þú í návígi við hönnuðina og hugsunina sem liggur að baki þínu nánasta umhverfi.
Hafnarhús / portið
FÍT 2013- Grafísk hönnun á Íslandi
Félag íslenskra teiknara stendur í þrettánda sinn fyrir hönnunarsamkeppni, nú á sextugasta afmælisári félagsins. Verðlaun og viðurkenningar eru veitt fyrir það besta í grafískri hönnun á Íslandi. Sýning á verkum sem hlutu verðlaun og viðurkenningar er opnuð á opnunardegi HönnunarMars.
Hafnarhús / portið
Pósturinn-Frímerki
Pósturinn og Félag íslenskra teiknara setja upp sýningu á íslenskum hönnunarfrímerkjum. Á sýningunni eru frímerki úr seríunni Íslensk samtímahönnun IV - Grafísk hönnun ásamt öðrum frímerkjum unnum af grafískum hönnuðum FÍT. Hönnuðir nýju frímerkjanna eru Siggi Odds, Ragnar Freyr, Rán Flygering og Siggi Eggertsson. Frímerkin koma út fimmtudaginn 14. mars.
Hafnarhús / portið
Umbúðahönnun 2013
Í byrjun mars stóðu Oddi, Félag íslenskra teiknara og Norræna húsið fyrir opinni umbúða hönnunarkeppni á kartoni, bylgjupappa og/eða mjúku plasti. Fjöldi skemmtilegra umbúða barst í keppnina og má skoða sýnishorn af 15 bestu tillögunum í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi.
Kjarvalsstaðir
Verðlauna- og uppskeruhátíð FHI
Verðlauna- og uppskeruhátíð FHI fer fram í fyrsta sinn í Listasafni Reykjavíkur- Kjarvalsstöðum, á HönnunarMars 2013. Hönnunarverðlaun FHI eru veitt fyrir framúrskarandi verkefni félagsmanna unnin á árunum 2007-2012 og á sýningunni má sjá valin verkefni húsgagna- og innanhússarkitekta. Verðlaunaafhending og opnunarhóf fer fram á Kjarvalsstöðum föstudaginn 15. mars frá kl. 16-18.
|