News
Listamannsspjall Sunnudag 11. nóvember kl. 15:00 HAFNARHÚS / D6 Karlotta Blöndal
Titillinn vísar til umskriftar Karlottu á dagbókum sem nú liggja óskráðar á Landsbókasafni Íslands og geyma beinar skrásetningar frá miðilsfundum í Reykjavík við upphaf 20. aldar þegar spíritisminn var mikils metinn í Evrópu. Með sýningunni veltir Karlotta upp spurningum um túlkun og táknmyndir. Textinn sem hún vinnur úr voru hluti vísindalegra rannsókna á transástandi og handansambandi miðils. Miðillinn stendur á hárfínni línu sem skilur að tvo heima og notar eigin líkama sem farveg upplýsinga. Karlotta útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1997. Hún stundaði framhaldsnám í Hollandi og Svíþjóð og lauk MA námi við Listaakademíuna í Malmö árið 2002. Sýningin stendur til 6. janúar 2008.
Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir.
Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 20.32.2013
|