News
LJÓSHÆRÐ UNGFRÚ HEIMUR 1951 - Birgir Snæbjörn Birgisson Laugardaginn 17. nóvember kl. 16:00
Í bók sem fylgir sýningunni talar Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur um þau heildaráhrif sem verk Birgis hafa: „Hann hefur valið sér efni sem byggir jafn mikið á endurtekningunni og málverkin sjálf. Hver ný fegurðardrottning er lík þeirri næstu á undan og hver og ein þeirra staðfestir gildi fyrirrennara síns. Málverk hans líkja eftir þeirri fjöldaframleiðslu sem á sér stað í fegurðarsamkeppnum en á sama tíma skopstæla þau áhrif þeirrar framleiðslu."
Hafþór finnur ákveðna samsvörum í verkum Birgis og bandaríska listamannsins Andy Warhol og segir: „Þó að röð leyfi óendanleg tilbrigði minnir endurtekningin okkur líka á hlutverk færibandsins í samtímanum, ekki bara í framleiðslu neytendavara heldur líka í framleiðslu á viðhorfum og smekk. Þetta er viðfangsefni Birgis og þar fór Andy Warhol um á undan honum. Þegar Warhol málaði myndaraðir sínar af goðsagnakenndum fegurðardísum sinna daga - Marilyn Monroe, Elizabeth Taylor og Jacqueline Kennedy - þá meðhöndlaði hann viðfangsefnin af sama tómlætinu og þegar hann málaði raðir af kókflöskum, Campbells súpudósum og Brillokössum.
Sýningarstjóri er Mika Hannula, rithöfundur, fyrirlesari, og gagnrýnandi. Hann er nú starfandi prófessor í listrannsóknum í myndlista- og hönnunardeild, Háskólans í Gautaborg.
Sýningin stendur til 13. janúar 2008.
Sunnudag 18. nóvember kl. 15:00 ræðir sýningarstjórinn Mika Hannula við listamanninn Birgir Snæbjörn Birgisson á Kjarvalsstöðum (á ensku).
Sýningin er styrkt af Kaupþingi.
Print Go back