News

Listasafn Islands

LÓAN ER KOMIN og D-7 INGIRAFN STEINARSSON. Opnun fimmtudaginn 10. janúar kl. 17:00. Opið til kl. 22:00!

Með lengdum opnunartíma vill safnið stuðla að meiri sveigjanleika og valmöguleikum gesta auk þess að bjóða upp á fölbreytta viðburði sem miða að því að Hafnarhúsið verði lifandi vettvangur þar sem ólíkir straumar og stefnur mætast. Flestar opnanir Hafnarhússins færast yfir á fimmtudaga en meðal annarra viðburða á fimmtudögum er fjölbreytt dagskrá  tengd sýningum, tónlistarflutningur úr ýmsum áttum, kvikmynda- og heimildamyndir, upplestrar, gjörningar, dans og fleira áhugavert.
Samhliða opnun á sýningu Steingríms Eyfjörð verður á fimmtudaginn opnuð sjöunda innsetningin í D-salnum sem Ingarafn Steinarsson stendur að. Sýningarnar standa báðar til 2. mars.

Lóan er komin
Innsetning Steingríms Eyfjörð vakti mikla athygli á Feneyjatvíæringinum og var af sumum talin meðal hápunkta Tvíæringsins. Í kjölfar hennar var Steingrími boðinn samningur við virt gallerí í New York þar sem hann verður með sýningu í vor.
Innsetningin í Hafnarhúsinu samanstendur af 13 sjálfstæðum verkum; ljósmyndum, skúlptúrum, textum, teikningum, myndböndum og öðrum miðlum. Þar er fléttað saman ólíkum þráðum úr íslenskri sögu og samtíma með tilvísunum í vestræna heimsmynd og alþjóðavæðingu. Steingrímur kafar djúpt í menningararfleifð Íslendinga og nútímalega tjáningu hennar, en endurskoðar um leið þá tjáningu og setur hana í annað og margræðara samhengi en oftast er raunin.
Sýningarstjóri er Hanna Styrmisdóttir.

Dagskrá
Fimmtudag 31. janúar, kl. 20
Seingrímur Eyfjörð og Hanna Styrmisdóttir fjalla um verk Steingríms og þátttökuna í Feneyjatvíæringnum.

Sunnudag 3. febrúar, kl. 14
Opin listsmiðja og leiðsögn fyrir alla fjölskylduna. 

Sunnudag 3. febrúar, kl. 15
Sýningarstjóraspjall
Hanna Styrmisdóttir sem vann með Steingrími Eyfjörð að uppsetningu sýningarinnar á tvíæringnum í Feneyjum annast leiðsögn


D7 - Ingirafn Steinarsson
Í höggmyndum sínum og innsetningum rannsakar Ingirafn Steinarsson mannlega hegðun og skipulag hlutanna í náttúrulegu umhverfi sínu. Hann skipuleggur hugmyndir sínar og býr til verkin á kerfisbundinn hátt með það fyrir augum að taka á mannlegum og sálfræðilegum aðstæðum sem oft er erfitt að nálgast á vísindalegan eða mælanlegan hátt.
Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.

Sunnudag 13. janúar, kl. 15
Listamannsspjall
Ingirafn Steinarsson ræðir við sýningarstjórnann Yean Fee Quay.



Printed of the web Reykjvik Art Museum, www.reykjvikartmuseum.is 23.24.2013