News
VATNSMÝRARVIÐBURÐIR OG FLEIRA FRÓÐLEGT
FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR
HAFNARHÚS KL. 20:00
UPPBOÐ
Nemar í hönnunardeild Listaháskóla Íslands sjá um „uppboð” á lóðum í Vatnsmýri með hliðsjón af vinningstillögu úr samkeppninni. Umsjón Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt.
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR
HAFNARHÚS KL. 16-18
KYNNING OG PALLBORÐ
Verðlaunahafar í hugmyndasamkeppninni um Vatnsmýrina kynna tillögur sínar og dómnefnd gerir grein fyrir niðurstöðum sínum. Í kjölfarið verða opnar pallborðsumræður um framtíðarsýn og skipulag borgar í Vatnsmýrinni.
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR
HAFNARHÚS
KL. 13-13:55 BEIN ÚTSENDING Hjálmar Sveinsson verður með beina útsendingu frá Hafnarhúsinu á þætti sínum Krossgötum þar sem rætt er um framtíðarskipulag borgarinnar með áherslu á Vatnsmýrina. Hjálmar fær til sín ýmsa viðmælendur og býður gesti velkomna að vera í sal og hlýða á.
KL. 14:00 LEIÐSÖGN Guja Dögg Hauksdóttir annast leiðsögn um Vatnsmýrarsýninguna.
KJARVALSSTAÐIR KL. 15:30
TÓNLEIKAR Kammerhópurinn Nordic Affect leikur tónlist sem innblásin er af kunnri tónleikaröð Abels og J.C.Bachs, sem heldra fólk í London sótti á seinni hluta 18.aldar. Tónleikarnir bera yfirskriftina Áskrift í London. Hópinn skipa innlendir og erlendir hljóðfæraleikarar sem allir hafa lokið námi í flutningi tónlistar á upprunaleg hljóðfæri. Þau eru Halla Steinunn Stefánsdóttir barokkfiðluleikari, Georgia Browne barokkþverflautuleikari, Nicholas Milne gömbuleikari og Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari.
SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR
HAFNARHÚS KL. 14:00
LEIÐSÖGN
Steve Christer arkitekt og dómnefndarmaður annast leiðsögn um Vatnsmýrarsýninguna.
KJARVALSSTAÐIR
KL. 14:00
LISTSMIÐJA FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA
Skapandi vinna og leiðsögn fyrir fjölskyldur þar sem óvæntu ljósi er brugðið á byggingarlist og nánasta umhverfi. Listsmiðjan tengist sýningunni Byggingarlist í augnhæð.
KL. 15:00
LEIÐSÖGN um sýningar Kjarvalsstaða.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT
Print Go back